top of page
Foreldrafélag Varmárskóla
er samstarfsvettvangur foreldra barna í skólanum.
Meginhlutverk þess er að styðja við skólastarfið og stuðla að velferð nemenda. Efla tengsl heimilis og skóla og hvetja foreldra til virkrar þátttöku í skólastarfi. Jafnframt að sinna hagsmunagæslu, aðhaldi og eftirliti með skólastarfinu.
Starfsfólk skóla, nemendur og foreldrar mynda skólasamfélagið í hverjum skóla. Mikilvægt er að þessir hópar vinni vel saman að mótun þessa samfélags og þeirra umgengnishátta sem eiga að einkenna samskipti innan skólans og utan. Til þess að það gangi vel þarf að ræða reglulega um áherslur og koma sér saman um meginviðmið.
Aðalnámskrá grunnskóla
bottom of page