top of page

Skólaráð

Við grunnskóla skal starfa skólaráð skv. 8 gr. grunnskólalaga 91/2008 sem er samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélags um skólahald.

Skólaráð tekur þátt í stefnumörkun skólans og mótun sérkenna hans og fjallar um :

  • Skólanámskrá skólans

  • Árlega starfsáætlun

  • Rekstraráætlun

  • Aðrar áætlanir um skólastarfið

Handbók um skólaráð

Fundargerðir

Þegar fyrirhugaðar eru miklar breytingar á skólahaldi sendir skólaráð frá sér umsögn um málið áður en endanleg ákvörðun er tekin.

Skólaráð hefur það hlutverk einnig að fylgjast með öryggi, aðbúnaði og almennri velferð nemenda. Ráðið er skipað níu einstaklingum til tveggja ára í senn, þessir aðilar eru:

  • Tveir fulltrúar kennara

  • Einn fulltrúi annars starfsfólks viðkomandi skóla

  • Tveir fulltrúar nemenda

  • Tveir fulltrúar foreldra

  • Skólastjóri

  • Einn aðili úr grenndarsamfélagi skólans

Skólastjóri stýrir starfi skólaráðs og ber ábyrgð á stofnun þess, auk þess ber honum að boða til sameiginlegs fundar skólaráðs og stjórnar nemendafélags skólans a.m.k. einu sinni á ári.

bottom of page