top of page
Search
  • Foreldrafélag Varmárskóla

Tvö áhugaverð erindi fyrir foreldra í Mosfellsbæ


Kæru foreldrar/forráðamenn barna í Mosfellsbæ!


Það er foreldrafélagi Varmárskóla sönn ánægja að deila hér með ykkur tveimur erindum frá Steinunni Önnu Sigurjónsdóttur sálfræðingi hjá Litlu kvíðameðferðarstöðinni.

Erindin fjalla annars vegar um sjálfsmynd unglinga og hins vegar um áhættuhegðun og sjálfskaða þeirra. Þetta eru virkilega áhugaverð erindi sem við hvetjum alla foreldra til að hlusta á. Upptökurnar verða aðgengilegar á vefsíðu foreldrafélags Varmárskóla til og með 22. desember. Erindin má finna hér.

Foreldrum býðst einnig að hitta hana Steinunni sálfræðing í opnum fyrirspurnartíma sem haldinn verður í gegnum fjarfundarbúnað þriðjudaginn 8. desember kl. 20:30. Tengill á fjarfundinn verður sendur út síðar í vikunni.


Með von um að þið nýtið ykkur þetta frábæra tækifæri


Stjórn foreldrafélags Varmárskóla



279 views0 comments

Recent Posts

See All
bottom of page